Sorphirða í Reykjavík hefst „á fullu“ í fyrramálið

Sorpbílar borgarinnar fara aftur á ferðina í fyrramálið vegna undanþágu …
Sorpbílar borgarinnar fara aftur á ferðina í fyrramálið vegna undanþágu sem veitt var vegna lýðheilsusjónarmiða. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert

Sorphirða í Reykjavík hefst „á fullu“ í fyrramálið eftir að undanþága fékkst frá verkfalli Eflingar vegna lýðheilsusjónarmiða. Byrjað verður á því að tæma tunnur í Breiðholti og síðan verður farið í Árbæinn, samkvæmt tilkynningu frá borginni.

„Undanþágan gildir til 6. mars nk. Öll sorphirða í Reykjavík er á eftir áætlun vegna verkfallsins. Byrjað verður að hirða sorp í Breiðholti strax í fyrramálið og biður sorphirðan íbúa sérstaklega um að moka vel frá sorpílátum og tryggja aðgengi að sorpgeymslum. Þá er nauðsynlegt að ganga vel frá aukaúrgangi í gráa plastpoka til að flýta fyrir hirðu. Eftir að hirðu lýkur í Breiðholti um miðja viku verður farið í að hirða sorp í Árbæ en ekki náðist að hirða sorp í þessum tveimur hverfum áður en ótímabundið verkfall Eflingar hófst,“ segir í tilkynningu borgarinnar.

Aðeins verður hirt blandað heimilissorp í þessari viku en hvorki pappír né plast, segir borgin, sem kemur því áleiðis að hægt verði að losa sig við flokkaðan úrgang á endurvinnslustöðvum Sorpu og á grenndarstöðvum víðsvegar um borgina.

Sorphirðudagatal Reykjavíkurborgar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert