Vigdís gefur kost á sér sem varaformaður

Vigdís Hauksdóttir.
Vigdís Hauksdóttir. mbl.is/Styrmir Kári

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sækist eftir embætti varaformanns Miðflokksins, en kosið verður í embættið á landsþingi flokksins 28. og 29. mars. Í dag er Gunnar Bragi Sveinsson varaformaður flokksins, en hann hefur ekki gefið út hvort hann muni sækjast áfram eftir embættinu.

Í tilkynningu frá Vigdísi segir hún að varaformaður sinni almennu innra starfi og sé tengiliður stjórnar við flokksfélög og sveitarstjórnarfulltrúa. „Reynsla mín af þingi og ekki síður í borgarstjórn mun án efa koma til með að styrkja böndin á milli stjórnar flokksins, sveitarstjórnarstigsins og grasrótarinnar nái ég kjöri.“

Þá segist hún jafnframt ekki geta skorast undan ábyrgð eftir hvatningu víða af landinu. „Ég vil þakka alla þá hvatningu og stuðning sem ég hef fengið víðs vegar að af landinu til að stíga þetta skref. Ég hef ígrundað málið vel og met það svo að ég geti ekki skorast undan ábyrgð. Jafnframt heiti ég því að vinna af heilindum og dugnaði til að gera hlut Miðflokksins sem mestan í framtíðinni, landi og þjóð til heilla.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert