Engir lausir tímar í skimun

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

„Það er greinilega talsverð traffík inn á síðuna, en ég veit meira um það í fyrramálið,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í samtali við mbl.is í kvöld. Að því er fram kemur á vefsíðunni bokun.rannsokn.is, þar sem einstaklingar geta pantað tíma í skimun fyrir kórónuveirunni, eru engir lausir tímar. 

Kári segist ekki vilja tjá sig frekar um málið, en ástæður að baki framangreindra aðstæðna ættu að liggja fyrir í fyrramálið. Ráðgera má að uppbókað sé í skimun næstu daga. 

Íslensk erfðagrein­ing hyggst hefja skiman­ir fyr­ir kór­ónu­veirunni á morg­un. Að sögn Kára er mark­miðið með skimun­un­um að kanna dreif­ingu veirunn­ar í sam­fé­lag­inu. Því væri reiknað með að sýni yrðu tek­in svo til af handa­hófi en ekki úr þeim sem sýndu ein­kenni sjúk­dóms.

Svona leit vefsíðan út fyrr í kvöld.
Svona leit vefsíðan út fyrr í kvöld.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert