Tjöruhúsið á Ísafirði innsiglað

mbl.is/Sigurður Bogi

Veitingastaðurinn Tjöruhúsið á Ísafirði var innsiglaður af lögreglunni á Vestfjörðum í gær, föstudag. Lögreglan lokaði staðnum ásamt fulltrúa Ríkisskattstjóra.

Þetta staðfestir lögreglan á Ísafirði í samtali við mbl.is. Vísir greindi fyrst frá málinu.

Ekki fengust frekari upplýsingar um málið frá lögreglu, en málið er sagt vera á ábyrgð Ríkisskattstjóra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert