„Nær ekkert gert til að fjölga störfum“

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að það sé ekki að sjá í fjárlagafrumvarpinu að stjórnvöld séu að átta sig á meginvandanum sem sé atvinnuleysið í landinu. Það sé í methæðum og á uppleið. „Nær ekkert er gert til að fjölga störfum eða létta undir atvinnulausum og fjölskyldum þeirra.“

Þetta kemur fram í færslu sem Ágúst birtir á Facebook. Hann segir ennfremur, að það vanti öll uppbyggingaráform „og fá þá því fjárlögin og fjármálaáætlun falleinkunn í hugum þeirra sem er annt um vinnu og velferð.“

Í færslunni fer hann yfir 10 atriði sem hann vill benda á, sem eru eftirfarandi:

„1. Í fyrsta lagi stendur ekki til að hækka grunnatvinnuleysisbætur og því eru tugþúsundir Íslendinga dæmdir til að lifa á 240 þús á kr. á mánuði, sem er upphæð sem enginn ráðherra myndi treysta sér til að lifa á.

2. Í öðru lagi eru fjárfestingar í nýjum störfum allt of litlar, bæði í einkageiranum og hjá hinu opinbera og atvinnuleysið verður því áfram hátt. Vegna hægrikreddu Sjálfstæðismanna er ekkert átak í að fjölga opinberum störfum þar sem þeirra er þörf eins og í hjúkrun, sálfræðiþjónustu, skólunum, löggæslu og þess háttar innviðastörfum.

Allt fjárfestingar- og uppbyggingarátak ríkisstjórnarinnar á næsta ári er undir 3% af fjárlögum. Í hvaða heimi telur fólk að það dugi þegar kemur að dýpstu kreppu Íslands í 100 ár?

3. Í þriðja lagi sýnist mér að boðaður sé sársaukafullur en óútfærður niðurskurður eftir rúm 2 ár upp á tæplega 40 milljarða árlega. Það gerist á kostnað þeirra  sem njóta opinberrar þjónustu hvort sem það eru eldri borgarar, öryrkjar, sjúklingar, námsmenn og fátækt fólk.

4. Í fjórða lagi er ennþá sýnt algjört skilningsleysi gagnvart litlum fyrirtækjum en ekki verður ráðist í frekari lækkun t.d. tryggingargjalds gagnvart þeim eins og væri kærkomið.

Samt eru haldið í fyrirhuguð áform að breyta skattlagningu á fjármagnstekjuskatti þannig að fjármagnseigendur einir hópa, verða varðir sérstaklega fyrir verðbólgu.

Þá vekur að það athygli að veiðileyfagjöld halda áfram að lækka og eru orðin álíka há og útvarpsgjaldið. Kannski kemur það ekki á óvart hjá þessari ríkisstjórn.

5. Þá vantar miklu meiri kraft í nýsköpunar en aukningin í nýsköpun milli ára eru 0,5% af fjárlögunum.

6. Sé litið til næstu 5 ára verður meira að segja lækkun til menningar, lista og íþróttastarfs sem er köld tuska framan í þessa geira.

7. Framhaldsskólar fá nánast sömu upphæð næstu fimm árin og nær hin marglofaða menntasókn ekki til þeirra af einhverjum ástæðum.

8. Þá er ég sannfærður að við gætum sett miklu meira fjármuni í að flýta hér arðbærum opinberum framkvæmdum til að auka eftirspurn í samfélaginu en samgöngumál fá mikla lækkun næstu fimm árin og jöfnunarsjóður sveitarfélaga fær minna á næsta ári en á þessu.

9. Viðbótin í umhverfismál nemur 0,34% af fjárlögum og er það nú merki um grænan metnað? Hvar er græna uppbyggingin?

10. Enn er meira að segja haldið í aðhaldskröfu gagnvart sjúkrahúsum og skólum á næsta ári. Og það á Covid tíma!“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert