Sigmar í framboð fyrir Viðreisn

Sigmar Guðmundsson.
Sigmar Guðmundsson. Ljósmynd/Aðsend

Sigmar Guðmundsson, fjölmiðlamaður hjá RÚV, býður sig fram fyrir Viðreisn í komandi alþingiskosningum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, leiðir framboðslista flokksins í Suðvesturkjördæmi en Sigmar skipar annað sæti listans, að því er segir í tilkynningu.

Sigmar Guðmundsson er þekktur fyrir störf sín í fjölmiðlum undanfarin þrjátíu ár en stígur nú inn á hið pólitíska svið í fyrsta sinn.

„Ég hef unnið í fjölmiðlum í nærri 30 ár og fjallað mikið um pólitík í mínum störfum. Það er því mjög spennandi fyrir mig að söðla um og vera virkur þátttakandi í stjórnmálum þótt það verði vissulega erfitt að kveðja minn gamla vinnustað sem hefur gefið mér svo mikið. Mínar skoðanir fara vel saman við stefnu Viðreisnar, þar sem frjálslyndi er lykilhugtak, auk þess sem ég hef mikið álit á fólkinu sem hefur borið uppi starfið þar. Flokkurinn vill stokka upp gömul kerfi og setja almannahagsmuni framar sérhagsmunum og ég hlakka til að leggja mín lóð á vogaskálarnar í þeirri baráttu,“ segir Sigmar í tilkynningunni.

Frá vinstri: Rafn Helgason, Ástrós Rut Sigurðardóttir, Sigmar Guðmundsson, Þorgerður …
Frá vinstri: Rafn Helgason, Ástrós Rut Sigurðardóttir, Sigmar Guðmundsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Elín Anna Gísladóttir og Thomas Möller. Ljósmynd/Aðsend

Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur skipar 3. sætið, Thomas Möller, verkfræðingur og ráðgjafi er í 4. sæti listans og Ástrós Rut Sigurðardóttir þjónustufulltrúi skipar 5. sæti. Þá er Rafn Helgason, umhverfis- og auðlindafræðingur í 6. sæti listans.

„Ég er gríðarlega stolt af þessum öfluga lista hjá okkur hér í Kraganum og er afar spennt fyrir næstu mánuðum í kosningabaráttu með þessum fjölbreytta og skemmtilega hópi,“ segir Þorgerður Katrín.

„Komandi kosningar munu snúast um það hvernig samfélag við viljum byggja hér til framtíðar og það hvort almannahagsmunir ráði þar för eða sérhagsmunir. Áherslur okkar í Viðreisn eru alveg skýrar. Við setjum almannahagsmuni framar sérhagsmunum með frjálslyndi og jafnrétti að leiðarljósi í baráttunni fyrir réttlátu samfélagi,“ segir hún.

Framboðslisti Viðreisnar í Suðvesturkördæmi:

  1. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Hafnarfjörður
  2. Sigmar Guðmundsson fjölmiðlamaður. Garðabær
  3. Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur. Mosfellsbær
  4. Thomas Möller, verkfræðingur og ráðgjafi. Garðabær
  5. Ástrós Rut Sigurðardóttir þjónustufulltrúi. Hafnarfjörður
  6. Rafn Helgason, umhverfis- og auðlindafræðingur. Garðabær
  7. Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður. Kópavogur
  8. Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi. Hafnarfjörður
  9. Sigrún Jónsdóttir flugfreyja. Hafnarfjörður
  10. Guðlaugur Kristmundsson þjálfari. Garðabær
  11. Kristín Pétursdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Hafnarfjörður
  12. Ívar Lilliendahl læknir. Mosfellsbær
  13. Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir sölufulltrúi. Hafnarfjörður
  14. Hermundur Sigurðsson raffræðingur. Hafnarfjörður
  15. Soumia I Georgsdóttir framkvæmdastjóri. Kópavogur
  16. Þórólfur Heiðar Þorsteinsson lögmaður. Kópavogur
  17. Sigríður Sía Þórðardóttir forstöðumaður. Kópavogur
  18. Jón Gunnarsson háskólanemi. Garðabær
  19. Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður samskipta. Hafnarfjörður
  20. Páll Árni Jónsson stjórnarformaður. Seltjarnarnes
  21. Steinunn Ása Þorvaldsdóttir dagskrárgerðarkona. Reykjavík
  22. Magnús Ingibergsson húsasmíðameistari. Mosfellsbær
  23. Þórey S Þórisdóttir doktorsnemi. Hafnarfjörður
  24. Eyþór Eðvarðsson ráðgjafi. Álftanes
  25. Theodóra S Þorsteinsdóttir, fyrrverandi alþingismaður. Kópavogur
  26. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra. Reykjavík
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert