Mikið um öldauða í nótt

Djamminu eru nú töluvert minni takmörk sett en í kórónuveirufaraldrinum.
Djamminu eru nú töluvert minni takmörk sett en í kórónuveirufaraldrinum. AFP

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust fjórar tilkynningar um öldauða í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þá var einnig nokkuð um að fólk væri handtekið grunað um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Allar tilkynningarnar um öldauðann bárust eftir klukkan fjögur í nótt. Rétt fyrir klukkan fjögur barst tilkynning um að ráðist hefði verið á dyraverði í miðbænum. 

Eitthvað var um umferðarslys og árekstra, þar ber helst að nefna umferðarslys í Mosfellsbæ þar sem bifreið var ekið inn í garð. Ökumaður bifreiðarinnar var flúinn af vettvangi þegar lögreglu bar að garði en engin slys urðu á fólki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert