Samþykkir bólusetningu barna

Börn verða bólusett með bóluefni Pfizer.
Börn verða bólusett með bóluefni Pfizer. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að gefa börnum á aldrinum 12 til 15 ára kost á bólusetningu við Covid-19 með það að markmiði að veita þeim vörn gegn sjúkdómnum.

Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Bólusett verður með bóluefni Pfizer þar sem meiri reynsla er fyrirliggjandi um bólusetningar þessa aldurshóps með því efni en bóluefni Moderna, sem einnig hefur fengið markaðsleyfi til notkunar fyrir börn á þessum aldri.

Fullbólusett um miðjan september

Ef allir þiggja boð um bólusetningu þarf um 35.000 bóluefnaskammta til að fullbólusetja allan aldurshópinn. Miðað við birgðir af Pfizer og afhendingaráætlanir á næstu vikum ætti að vera unnt að ljúka bólusetningu hópsins með síðari bólusetningu um miðjan september.

Á höfuðborgarsvæðinu fer bólusetning barna fram í Laugardagshöll dagana 23. og 24. ágúst. Upplýsingar þess efnis verða sendar öllum skólastjórnendum. Foreldrar sem þiggja bólusetningu fyrir börn sín verða beðnir að fylgja börnum sínum í bólusetningu og veita þar með upplýst samþykki fyrir bólusetningunni ásamt því að vera börnunum til halds og trausts.

Heilsugæslustöðvar í öðrum heilbrigðisumdæmum eru að skipuleggja framkvæmd bólusetningar með svipuðum hætti og á höfuðborgarsvæðinu. Embætti landlæknis mun birta nánari upplýsingar varðandi bólusetningar barna, og heilsugæslustöðvar í hverju heilbrigðisumdæmi munu birta upplýsingar og auglýsa fyrirkomulag bólusetninga og tímasetningar á hverjum stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert