Blóðugur maður með hníf í miðbænum

Lögreglan færði manninn í fangageymslu.
Lögreglan færði manninn í fangageymslu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var um blóðugan mann með hníf í miðbæ Reykjavíkur snemma í morgun er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Maðurinn var vistaður í fangageymslur lögreglu. Hnífurinn fannst í fórum hans og var hann haldlagður af lögreglu ásamt þó nokkuð miklu magni af meintum fíkniefnum er kemur fram í dagbókinni.

Þá var tilkynnt um mann í sturlunar ástandi í Breiðholti og að hann væri búinn að ráðast á fólk í morgun. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert