Hrækti á lögreglu

mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan hafði afskipti af fjórum líkamsárásum í nótt, þar af voru þrjár gegn konum, kemur fram í dagbók lögreglu.

Kona skölluð í andlitið

Ráðist var á konu í stigagangi við heimili hennar í Laugardalnum.  Konunni var hrint og hún skölluð í andlitið. Árásaraðili fór inn í íbúð á stigaganginum.  Við árásina brotnuðu gleraugu konunnar og var hún með áverka í andliti eftir árásina.

Rétt eftir miðnætti var tilkynnt um aðra líkamsárás gegn konu í miðbænum. Þegar lögreglumenn ræddu við árásarmanninn brást hann við með því að hrækja á þá. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu sökum ástands.

Tvær árásir á veitingahúsum

Kona var slegin í andlitið á veitingahúsi í miðbænum. Árásaraðili var farinn af vettvangi þegar lögregla kom.     

Þá var tilkynnt um aðra líkamsárás við veitingahús í miðbænum rétt eftir klukkan eitt.  Ráðist á ölvaðan mann og var hann með skurð fyrir neðan auga eftir árásina.  Maðurinn fékk aðhlynningu frá áhöfn sjúkrabifreiðar á vettvangi.  Árásaraðilar voru farnir af vettvangi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert