Gagnrýnir ráðherra og hagsmunaaðila

Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir.
Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir. mbl.is/RAX

Í snúinni fimmtu bylgju Covid hefur oft verið kallað eftir fyrirsjáanleika, ekki síst frá samtökum atvinnulífsins og vissum stjórnmálamönnum. Nýlega kölluðu tveir ráðherrar eftir því að allar Covid-takmarkanir yrðu afnumdar hér á landi – allt í nafni einstaklingsfrelsis.“

Þetta skrifar Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir á facebook-síðu sína. Hann skorar á stjórnmálamenn að kanna aðstæður á Landspítala og sjá til að mynda með eigin augum ástandið á gjörgæslunni. Með því verði skilaboðin út á við skynsamlegri og markvissari - öllum landsmönnum til heilla.

Tómas segir að ráðherrarnir hafi vísað til Dana og Norðmanna og lífið væri leikur einn þar. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafi verið gagnrýndur harðlega fyrir að vara við afléttingum.

Látið undan þrýstingi hagsmunaaðila

Til allrar hamingju voru landamæri okkar ekki opnuð upp á gátt, en því miður var látið undan miklum þrýstingi ýmissa hagsmunaaðila og öðrum takmörkunum aflétt of hratt. Afleiðingarnar blasa nú við í sögulega hárri tíðni Covid-sýkinga. Landspítali er enn og aftur kominn á hættustig, gjörgæsludeildir spítalans fullar upp í rjáfur og staðan bæði á smitsjúkdóma- og lungnadeild mjög þung - og þyngist daglega. Sama þróun hefur orðið í fyrirmyndarlöndunum Danmörku og Noregi, sem í skyndi hafa innleitt Covid-takmarkanir. Sunnar í álfunni hefur af illri nauðsyn þurft að grípa til mun harðari aðgerða, eins og í Þýskalandi, Austurríki og Hollandi,“ skrifar Tómas.

Hann segir afleiðingu hárrar smittíðni hér á landi endurspeglast í því að önnur ríki vari nú þegna sína við ferðalögum til Íslands.

Er þetta fyrirsjáanleikinn sem ferðaþjónustan og samtök atvinnurekanda voru að auglýsa eftir, og það frá sjálfum ráðherra málaflokksins? Orðum fylgir ábyrgð. Það verður að teljast skrítið að ráðherrar skuli stíga fram undir formerkjum einstaklingsfrelsis og afnema takmarkanir sem eru nauðsynlegar og settar á með mannúð og hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Skoðanaskipti eiga vissulega rétt á sér, en ráðherrar verða að gæta orða sinna og varast að berja í falskar pólitískar bumbur. Skynsemi er nefnilega merkilega fyrirsjáanleg.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert