Fjórir sóttu um starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins og fimm um starf dagskrárstjóra Rásar tvö. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Auglýst var eftir umsækjendum í janúar.
Eftirfarandi sóttu um starf fréttastjóra:
Heiðar Örn Sigurfinnsson, varafréttastjóri.
Valgeir Örn Ragnarsson, fréttamaður.
Þór Jónsson, sviðsstjóri.
Þórir Guðmundsson, fyrrverandi ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.
Eftirfarandi sóttu um starf dagskrárstjóra Rásar 2:
Ágúst Héðinsson, verkefnastjóri.
Guðmundur Gunnarsson, breytingastjóri.
Jóna Valborg Árnadóttir, sérfræðingur.
Matthías Már Magnússon, aðstoðardagskrárstjóri Rásar 2.
Sigurður Ragnarsson, framkvæmdastjóri.