Ekki verið að standa vörð um náttúru Íslands

Fuglafriðland við Héraðsvötn.
Fuglafriðland við Héraðsvötn. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Svæði, sem búið var að meta gríðarlega verðmæt með náttúruna í huga, eru aftur sett í hættu eftir að staðir eins og til að mynda Héraðsvötn eru færð úr verndarflokki í biðflokk samkvæmt rammaáætlun, sem afgreiða á fyrir þinglok.

Þetta segir Auður Önnu Magnús­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Land­vernd­ar, en boðað hefur verið til samstöðufundar vegna stöðu rammaáætlunar. Fundurinn hefst klukkan 17 fyrir utan Alþingishúsið og eru náttúruunnendur hvattir til að mæta.

Þriðji áfangi ramm­a­áætl­un­ar um vernd og ork­u­nýt­ingu landsvæða hef­ur hlotið af­greiðslu inn­an um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar Alþing­is en nefnd­in af­greiddi þings­álykt­un­ar­till­lögu um ramm­a­áætl­un­ina á föstu­dag­inn.

„Þetta snýst um það að allt í einu hefur meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis ákveðið að breyta niðurstöðu rammaáætlunar,“ segir Auður.

Fulltrúar náttúruverndarsamtaka munu afhenda þingmönnum allra flokka veglega mynd af …
Fulltrúar náttúruverndarsamtaka munu afhenda þingmönnum allra flokka veglega mynd af Dynk eftir Árna Tryggvason, en Dynkur er ein af þeim ómetanlegu náttúrugersemum sem meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar vill færa úr verndarflokki og skrefi nær faðmi virkjanaaflanna. mbl.is//Sigurður Bogi

„Þessu viljum við mótmæla,“ segir hún. Vinnubrögðin séu ólýðræðisleg vegna þess hve skömmu fyrir þinglok tillagan kemur fram og einnig sé hún ófagleg; engar haldbærar röksemdir eða gögn styðji málatilbúnað meirihlutans.

„Þarna er ekki verið að standa vörð um náttúru Íslands. Ekki einu sinni með því eina tæki sem hún hefur til að verja sig gagnvart virkjunum; sem er rammaáætlun.“

Skrítið að náttúruverndarflokkur leggi þetta til

Samkvæmt þriðja áfanga rammaáætlunar á meðal annars að færa virkjanir kenndar við Héraðsvötn og Jökulsárnar í Skagafirði úr verndarflokki í biðflokk og sömuleiðis Kjalölduveitu neðst í Þjórsárverum,

Landvernd bendir á að virkjanahugmyndir við Héraðsvötn og Skjálfandafljót auk Kjalölduveitu séu allar í jaðri mikilvægra víðernasvæða hálendisins en Landsvirkjun hafi illa getað sætt sig við að þær færu í verndarflokk. Áralöng barátta náttúruunnenda fyrir varanlegri sátt um vernd Þjórsárvera og farveg Þjórsár, fjórum af mestu fossum landsins, yrði að engu gerð.

Auður Anna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar.
Auður Anna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar. Ljósmynd/Landvernd

Auður segist hafa trú á því að mótmælin skili einhverju, annars stæðu þau ekki í þeim.

„Vonin er kannski veik en við vonum að þingmenn finni sláttinn í sínu eigin náttúruverndarhjarta og standi vörð um íslenska náttúru. Það er þeirra hlutverk.“

Hefði ekki þótt skrítið fyrir nokkrum árum að þetta væri að gerast með Vinstri græn í ríkisstjórn?

„Það hefði þótt skrítið fyrir nokkrum árum og er mjög skrítið enn þá að náttúruverndarflokkur sé að leggja þetta til.“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vísaði gagnrýni náttúruverndarsamtaka á bug í samtali við mbl.is fyrr í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert