Alltaf hafi staðið til að bjóða Jóni Baldvin

Jón Baldvin Hannibalsson.
Jón Baldvin Hannibalsson. mbl.is/Árni Sæberg

Embætti forseta Íslands segir það með öllu ósatt að ekki hafi staðið tli að bjóða Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra, til hátíðarviðburðar í tilefni þess að rúm 30 ár eru liðin síðan Íslands tók á ný upp stjórnmálasamband við Eystrasaltslöndin Eistland, Lettland og Litháen.

Frétt Fréttablaðisins þess efnis frá því í morgun er vísað á bug af embættinu. Í fréttinni er vitnað í Sighvat Björgvinsson, fyrrum ráðherra og samflokksmann Jóns Baldvins. 

Fram kemur í tilkynningu embættis forseta Íslands að Jón Baldvin hafi fengið boð sama dag og aðrir boðsgestir eins og alltaf hafi staðið til og tekið fram að auðvelt hafi verið fyrir blaðið að sannreyna málið með einu símtali. Jafnframt er tekið fram að viðburðurinn fari fram í hátíðarsal Háskóla Íslands en ekki Háskólabíói eins og kom fram í Fréttablaðinu.

Bessastaðir.
Bessastaðir. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Einnig má taka fram að þegar aldarfjórðungur var liðinn frá endurheimt sjálfstæðis Eystrasaltslandanna árið 2016 bauð forseti Jóni Baldvin Hannibalssyni til viðburðar á Bessastöðum í tilefni þeirra merku tímamóta. Óhætt er að fullyrða að enginn annar Íslendingur en núverandi forseti (fyrir utan Jón sjálfan) hefur vakið eins oft og vel athygli á atbeina hans örlagaárið 1991 þegar íslensk stjórnvöld studdu dyggilega við sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsþjóðanna,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert