Skýrslan ekki væntanleg fyrir landsfundinn

Skýrsla Ríkisendurskoðunar er ekki væntanleg í þessari viku.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar er ekki væntanleg í þessari viku. mbl.is/Kristinn Magnússon

Skýrslu Rík­is­end­ur­skoðunar um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka er ekki að vænta í þess­ari viku. Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, en Guðmund­ur Björg­vin Helga­son ríkisendurskoðandi staðfesti þetta í samtali þeirra á milli.

Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Guðmundur Björgvin að vinna við skýrsluna væri á lokametrunum. Hann vildi þó ekki staðfesta hvort unnt væri að afhenda skýrsluna til forseta Alþingis fyrir helgi en þá fer landsfundur Sjálfstæðisflokksins fram. Þar munu Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, bjóða sig fram til embættis formanns.

„En auðvitað er okkur farið að lengja eftir skýrslunni

Skýrsl­unn­ar hef­ur verið beðið um nokk­ur skeið, en upp­haf­leg áætl­un miðaðist við að skýrsl­an kæmi út fyr­ir lok júní en sú áætl­un miðaðist við það að öll gögn lægju fyr­ir í mál­inu, en svo reynd­ist ekki vera.

Skýrsludrögin bárust fjármálaráðuneytinu fyrr í mánuðinum og vinnur Ríkisendurskoðun nú úr umsögnum sem bár­ust frá fjár­málaráðuneyt­inu ann­ars veg­ar og banka­sýsl­unni hins veg­ar.

Í samtali við mbl.is segir Þórunn að nefndin hafi sýnt því skilning og biðlund.

„En auðvitað er okkur farið að lengja eftir skýrslunni,“ bætir hún þó við.

Vill fá fyrirvara

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, hafði ekki fengið það staðfest að skýrslan yrði ekki afhent í þessari viku þegar mbl.is náði tali af honum. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa skoðun á því að afhending skýrslunnar hefði dregist á langinn.

Hann hafi einungis óskað eftir því að þinginu yrði gefinn smá fyrirvari áður en skýrslan yrði afhent svo hægt væri að gera ráðstafanir. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert