Umræðum á Alþingi um útlendingafrumvarpið lauk ekki fyrr en um tvöleytið í nótt. Síðust í pontu var Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, og að ræðu lokinni óskaði hún eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.
Önnur umræða frumvarpsins hefur nú staðið yfir í um 45 klukkustundir og hafa þingmenn Pírata skipst á að koma upp í pontu og ræða frumvarpið, lesa upp umsagnir um það og þræða sig í gegnum greinar þess.
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur sagt það vonbrigði að málið hafi tafist og að frumvarpið sé viðbragð við því ástandi sem er uppi um þessar mundir þegar kemur að flóttafólki og innflytjendamálum.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt útlendingafrumvarpið harðlega og vakið athygli á neikvæðum umsögnum um það frá mannréttindasamtökum á borð við Amnesty International, Rauða krossinn og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands.