Ný akbraut tekin í notkun á Keflavíkurflugvelli

Fyrsta flugvélin sem ók eftir Mike var Icelandair-vélin Fagradalsfjall, en …
Fyrsta flugvélin sem ók eftir Mike var Icelandair-vélin Fagradalsfjall, en vélin var á leið til Oslóar. Ljósmynd/Isavia

Ný akbraut á Keflavíkurflugvelli var formlega tekin í notkun í dag. Akbrautin tengir saman flughlað flugstöðvarinnar og flugbraut. En hvað á brautin að heita? Mike, samkvæmt tilkynningu Isavia.

Fyrsta flugvélin sem ók eftir Mike var Icelandair-vélin Fagradalsfjall, en vélin var á leið til Oslóar. 

Fyrsta viðbót Isavia

Akbrautin er fyrsta viðbót Isavia við flugbrautakerfið, en allar aðrar viðbætur voru lagðar af NATO eða Bandaríkjaher. Mike er engin smásmíði og er 1.200 metrar á lengd og 35 metrar á breidd. Til samanburðar myndi malbikið duga til að malbika 35 fótboltavelli. Kostnaður við akbrautina eru tæpir 4 milljarðar króna.

Akbrautin mun minnka biðtíma flugvéla að komast af akbraut eða komast í loftið á háannatíma og þar af leiðandi minnka kolefnisspor flugvéla á jörðu, sem er eitt af markmiðum flugvallarins.

Mike er engin smásmíði og er 1.200 metrar á lengd …
Mike er engin smásmíði og er 1.200 metrar á lengd og 35 metrar á breidd.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert