Breyta afkomuspá vegna jarðhræringanna

Birgir Jónsson, forstjóri Play.
Birgir Jónsson, forstjóri Play. mbl.is/Eggert

Jarðhræringarnar og líkur á eldgosi á Reykjanesskaga síðustu vikur gera það að verkum að afkomuspá ársins hjá flugfélagsins Play, sem birt var í september og aftur í þriðja ársfjórðungs uppgjöri félagsins í október, á ekki lengur við. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Play en þar segir:

„Jarðhræringarnar og líkur á eldgosi á Reykjanesskaga síðustu vikur hafa rataði í fyrirsagnir um víða veröld. Jarðhræringarnar hafa ekki haft áhrif á flugáætlun Play og Ísland er líkt og áður öruggur áfangastaður fyrir ferðamenn að heimsækja.   

Þessir atburðir hafa þó haft þau áhrif að eftirspurnin eftir ferðum til Íslands, sem bókaðar eru með skömmum fyrirvara, hefur verið minni og mun það hafa áhrif á afkomu félagsins.  

Þessir þættir gera það að verkum að afkomuspá ársins, sem birt var í september og aftur í þriðja ársfjórðungs uppgjöri félagsins í október, á ekki lengur við.  Lausafjárstaða félagsins verður ívið lægri en búist var við en verður engu að síður heilbrigð.  

Play hefur ráðist í ýmsar aðgerðir til að takmarka framangreind neikvæð áhrif á rekstur félagsins og lausafjárstöðu og aðlagast þessum breyttu aðstæðum, þar á meðal með því að breyta flugáætlun og framboði til að mæta minni eftirspurn á komandi vikum og mánuðum. “

Hlutir hafa á köflum verið teknir úr samhengi

Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir að fyrirtækið muni nota sveigjanleikann í rekstrinum til að mæta þessum nýju áskorunum og að starfsmenn Play hafi þegar hafið þá vinnu.

„Á síðustu tveimur vikum höfum við séð fyrirferðarmikinn fréttaflutning á heimsvísu þar sem hlutir hafa á köflum verið teknir úr samhengi. Þetta hefur haft áhrif á eftirspurn, og sérstaklega á eftirspurn eftir flugferðum til Íslands á aðventunni og á nýju ári.    

Það hafa þó verið skýr teikn á síðustu dögum dögum sem gefa til kynna að eftirspurnin sé að taka við sér á ný. Aukningin mun þó ekki reynast nægjanleg til að bæta upp þau áhrif sem atburðir síðustu vikna hafa haft til skamms tíma.   

Á þessum óvissutímum er hugur okkar hjá Grindvíkingum sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Margir af starfsmönnum Play eiga heimili í Grindavík eða rætur þangað að rekja og hefur Play boðið þeim starfsmönnum aðstoð til að bregðast við þessum erfiðu tímum. Við vonum að þessi staða leysist sem allra fyrst svo Grindvíkingar geti andað léttar og horft fram á veginn,“ segir Birgir ennfremur í tilkynningu frá Play.   



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert