Köstuðu rauðu glimmeri á Bjarna

Jakki Bjarna var þakinn rauðum lit.
Jakki Bjarna var þakinn rauðum lit.

Hópur mótmælenda kastaði rauðu glimmeri á Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra á hátíðarfundi sem fór fram í Veröld, húsi Vigdísar, núna í hádeginu. 

Bjarni yfirgaf svo salinn.
Bjarni yfirgaf svo salinn.

Bjarni átti að flytja lokaávarp á fundinum sem var haldinn í tilefni af 75 ára afmæli mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðuneytið og utanríkisráðuneytið stóðu fyrir fundinum ásamt Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. 

Mótmælendur á vettvangi með stóran borða.
Mótmælendur á vettvangi með stóran borða.

Mótmælendur héldu á borða þar sem skorað var á íslensk stjórnvöld að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert