Brennisteinsfjöll byrsta sig

Nálægð. Snæviþakin Bláfjöll ber við himin handan Hafnarfjarðar. Upptök skjálftanna …
Nálægð. Snæviþakin Bláfjöll ber við himin handan Hafnarfjarðar. Upptök skjálftanna eru enn nær borginni en þessi skjannahvíti fjallabálkur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Skjálftahrinan sem vart hefur orðið undanfarna daga, í hrauninu Húsfellsbruna suðaustur af Reykjavík, er til marks um að eldstöðvakerfið sem kennt er við Brennisteinsfjöll hafi virkjast.

Þetta telur Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, sem ræðir við Morgunblaðið í dag.

Fjallað var um skjálftahrinuna, upptök hennar og sögu svæðisins á mbl.is um helgina.

Fyrirbyggjandi aðgerðir mikilvægar

Þorvaldur tekur fram að honum finnist mjög mikilvægt að ráðast af alvöru í fyrirbyggjandi aðgerðir og áætlanir. Því fyrr, því betra.

„Og það þýðir ekkert að setja það á sem eitthvert aukaverkefni,“ segir eldfjallafræðingurinn.

„Það verður bara að fara í þá vinnu af alvöru og láta hana hafa pínulítið forskot. Af því að við erum komin á þennan stað með þetta allt saman.“

Ítarlegri umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert