Í dag má búast við sunnan 10 til 18 metrum á sekúndu og slyddu víða eða snjókomu en rigningu á suðaustanverðu landinu en úrkomulítið verður norðaustanlands. Hiti verður um eða yfir frostmarki.
Suðvestan 8 til 15 metrar á sekúndu á morgun og él en bjartviðri norðaustan til á landinu. Víða má búast við vægu frosti.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að búast megi við stinningskalda eða allhvössum vindi í dag. Það berist heldur hlýrri loftmassi yfir heldur en verið hefur og úrkoman verði þá á mismunandi formi. Víðast hvar verði snjókoma eða slydda en rigning með suðurströndinni og á Suðausturlandi.