Vill skoða bólgu í verði á Fossvogsbrú

Sigurður segir hljómar eins og talsverð bólga sé í verðum …
Sigurður segir hljómar eins og talsverð bólga sé í verðum við byggingu Fossvogsbrúar. Samsett mynd/Efla/Beam Architecths/Eggert Jóhannesson

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra kveðst hafa beðið um að útboð Reykjavíkurborgar á uppbyggingu Fossvogsbrúarinnar verði skoðað innan ráðuneytisins.

„Þetta hljómar þannig að það sé talsverð bólga í verðum,“ segir Sigurður Ingi.

„Það er eitthvað sem ég hef beðið um að verði skoðað í ráðuneytinu. Hvar og hvernig svona hlutir gerist og hver taki þessar ákvarðanir, en þær eru ekki teknar í ráðuneytinu,“ segir hann að lokum. 

Verðmiðinn hækkað talsvert

Kostnaður brúarinnar sem mun hljóta nafnið Alda, hefur siglt talsvert fram úr áætlunum en sam­kvæmt frumdrög­um að fyrstu lotu borg­ar­línu var áætlaður kostnaður við brúna sjálfa 2,25 millj­arðar.

Sam­kvæmt nýj­ustu áætl­un­um er verðmiðinn á brúnni 8,8 millj­arðar króna en gera má ráð fyr­ir að kostnaður­inn sigli um­tals­vert fram úr áætl­un­um og geti jafn­vel numið 15 millj­örðum kóna þegar upp verður staðið.

Áætlað er að Fossvogsbrúin muni kosta átta milljarða króna.
Áætlað er að Fossvogsbrúin muni kosta átta milljarða króna. Teikning/Efla og BEAM

Endurskoðun sáttmálans vel á veg komin

Spurður um framvindumála í endurskoðun samgöngusáttmálans segir Sigurður Ingi vinnu hennar vel á veg komna. 

„Mér skilst að sú vinna gangi vel. Hún er auðvitað umfangsmikil og þetta eru stór verkefni,“ segir Sigurður Ingi.

Jón Gunnarsson, alþingismaður vakti athygli á því í viðtali við Morgunblaðið fyrr í vikunni að endurskoðun sáttmálans hafi staðið yfir síðan s.l. sumar. 

Enn bóli ekkert á niður­stöðu þrátt fyr­ir að hafa átt að taka ör­fá­ar vik­ur. Foss­vogs­brú­in er eitt þeirra sam­göngu­verk­efna sem sátt­mál­inn tek­ur til.

Tölvumynd/Reykjavíkurborg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert