Ólögmætt samráð metið á tugi milljarða

Ólögmætt samráð skipafélaganna Eimskips og Samskipa er metið til tæplega 62 milljarða samfélagskostnaðar árin 2008 til '13. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Félagi atvinnurekenda, Neytendasamtökunum og VR.

„Þar af var kostnaðarauki neytenda 26 milljarðar króna sem rekja má beint til hækkana gjaldskrár skipafélaganna umfram almennt verðlag. Lántakendur verðtryggðra lána greiddu um 17,4 milljarða aukalega vegna hækkunar vísitölu sem tilkomin er vegna samráðsins, og er það varlega áætlað. Þetta er á meðal niðurstaðna frummats á tjóni vegna samkeppnisbrota Samskipa og Eimskips, sem ráðgjafarfyrirtækið Analytica vann,“ segir enn fremur.

Villandi og ófullnægjandi upplýsingagjöf

Samkeppniseftirlitið lýsir samráðsbrotum skipafélaganna ítarlega í ákvörðun sinni frá því í lok ágúst. Kemur þar fram að Samskip hafi brotið með alvarlegum hætti gegn samkeppnislögum og samningnum um Evrópska efnahagssvæðið með ólögmætu samráði við Eimskip.

Þá hafi félagið gerst sekt um villandi og ófullnægjandi upplýsingagjöf og gagnaafhendingu eftir því sem eftirlitið úrskurðaði og námu samanlagðar stjórnvaldssektir vegna brotanna 4,2 milljörðum króna. Lagði eftirlitið fyrir Samskip að grípa til tiltekinna aðgerða í því skyni að koma í veg fyrir frekari brot og efla samkeppni.

„Sam­ráðið í heild sinni var til þess fallið að gera fyr­ir­tækj­un­um kleift að draga með af­drifa­rík­um hætti úr sam­keppni og hækka eða halda uppi verði gagn­vart viðskipta­vin­um fyr­ir­tækj­anna, t.d. með hækk­un við end­ur­nýj­un samn­inga, hækk­un á gjald­skrám og þjón­ustu­gjöld­um, upp­töku nýrra gjalda, lækk­un af­slátta o.s.frv.,“ sagði í úrskurðinum.

Kostnaðarauki fyrirtækja 12,7 milljarðar

Í áður tilvitnaðri fréttatilkynningu kemur fram að Analytica meti að samráðið hafi leitt til þess að vísitala neysluverðs hafi hækkað um 0,7 prósent umfram það sem gera hefði mátt ráð fyrir ef gjaldskrár skipafélaganna hefðu haldist óbreyttar að raungildi.

„Áætlað er að kostnaðarauki fyrirtækja í útflutningi hafi numið um 12,7 milljörðum, viðskiptavina í flutningsmiðlun um 3,7 milljörðum og viðskiptavina í landflutningum um 1,9 milljörðum. Þessar tölur eru á verðlagi 2. ársfjórðungs síðasta árs, um það leyti sem SE birti ákvörðun sína,“ segir svo.

Fari Analytica ítarlega yfir einstaka matsþætti og forsendur að baki þeim og bendi meðal annars á að gjaldskrár skipafélaga í nágrannalöndunum hafi farið lækkandi á samráðstímanum, árabilið 2008 til '13, en á þeim tíma haf gjaldskrár Eimskips og Samskipa hins vegar hækkað verulega. Hafi afkoma félaganna tveggja á þessum tíma verið mun betri en helstu erlendu skipafélaga á sama tíma.

Samkeppnisbrot séu dýrkeypt

„Mat Analytica er frummat, byggt m.a. á gögnum sem er að finna í ákvörðun SE í máli Samskipa, en ýtarlegra mat á tjóni einstakra viðskiptavina eða hópa viðskiptavina getur átt eftir að fara fram, t.d. vegna skaðabótamála á hendur skipafélögunum.

„Þetta er dýrkeypt og hrikaleg aðför að neytendum, sem ekki má endurtaka. Það væri mikill fælingarmáttur fólginn í að auðvelda neytendum að sækja skaðabætur vegna samkeppnislagabrota, til dæmis með innleiðingu tilskipunar 2014/104/ESB í íslensk lög eða að sett verði sambærileg lög.  Þá þarf að skýra lög og heimildir fyrir almannaheillasamtök að efna til hópmálsókna og gera þær að raunverulegum kosti í svona málum,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.“

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, kveður tölurnar varpa ljósi á hve dýrkeypt samkeppnisbrot geti reynst íslensku atvinnulífi. Mikilvægt sé að hafa skilvirkt Samkeppniseftirlit sem upplýsi slík brot auk þess sem afleiðingar séu þess eðlis að þær fæli fyrirtæki frá brotum.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir skipafélögin hafa sýnt launafólki og neytendum í landinu algert virðingarleysi með samráðinu sem nú sjáist hvað kosti samfélagið. „Þetta undirstrikar enn og aftur mikilvægi þess að efla Samkeppniseftirlitið sem gegnir lykilhlutverki við að verja hagsmuni almennings. Þetta er einnig mikilvægt innlegg í kjaraviðræðurnar – öflugt samkeppniseftirlit er ein forsenda þess að við semjum til réttlátrar framtíðar,“ er haft eftir Ragnari í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert