Vatn flæðir yfir þjóðveginn við Múlakvísl

Unnið er að því að tappa frá veginum til að …
Unnið er að því að tappa frá veginum til að koma í veg fyrir að vatn flæði yfir veginn. Ljósmynd/Ágúst Freyr Bjarnason

Vatn flæðir yfir þjóðveginn við Múlakvísl, vestast á Mýrdalssandi, á tveimur stöðum vegna leysinga á svæðinu. Unnið er að því að hleypa vatni betur af svo hætti að flæða yfir veginn. 

Þetta segir Ágúst Freyr Bjarnason, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar í Vík, í samtali við mbl.is. 

Ekki hefur þurft að loka veginum vegna leysinganna.
Ekki hefur þurft að loka veginum vegna leysinganna. Ljósmynd/Ágúst Freyr Bjarnason

Ekki þörf á að loka veginum

Ágúst segir Vegagerðinni hafa borist upplýsingar um að vatn rynni með fram veginum fyrr í dag. Síðan þá hafi bæst í vatnsflæðið, en sem betur fer hafi ekki orðið miklar skemmdir á veginum. 

„Við erum á staðnum og hægjum á bílum á meðan það er verið að hleypa betur af,“ segir Ágúst og áréttir að ekki hafi þurft að loka veginum vegna leysinganna. 

„Það keyra bara allir rólegir yfir.“

Vatn flæddi meðfram veginum áður en vatnsflæðið jókst og náði …
Vatn flæddi meðfram veginum áður en vatnsflæðið jókst og náði yfir veginn. Ljósmynd/Jónas Erlendsson

Leysingar á svæðinu ekki óvanalegar 

Aðspurður segir Ágúst leysingar á svæðinu ekki óvanalegar og þaðan af síður í asahláku eins og nú er.

„Það er aðallega þetta tíðarfar sem er óvanalegt,“ segir Ágúst og bætir við. 

„Hiti, rigning, rok og snjór, þá fer allt af stað.“

Bílarnir aka hægt yfir þar sem vatn flæðir yfir veginn.
Bílarnir aka hægt yfir þar sem vatn flæðir yfir veginn. Ljósmynd/Ágúst Freyr Bjarnason
Vatn flæðir yfir þjóðveginn við Múlakvísl, vestast á Mýrdalssandi.
Vatn flæðir yfir þjóðveginn við Múlakvísl, vestast á Mýrdalssandi. map.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert