Sjálfstæðismenn með lögregluvernd í hringferð

Samsett mynd

Lögreglan hefur fylgt Sjálfstæðisflokknum í hringferð flokksins um landið til að tryggja öryggi ráðherra og þingmanna. Hefur þetta ekki verið gert á síðustu árum þegar flokkurinn hefur farið í hringferð.

Þetta segir Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, í skriflegu svari til mbl.is.

„Það er rétt að lögregla hefur verið á staðnum á einhverjum viðburðum og hlutum leiðarinnar. Þetta er ekki að ósk þingflokksins eða ráðherranna sjálfra, heldur gerir lögreglan áhættumat og tekur ákvarðanir um löggæslu byggt á því,“ segir Hildur.

Hún segir þingmenn að sjálfsögðu þakkláta lögreglunni fyrir sín góðu störf og segir samskiptin hafa verið jákvæð í alla staði.

„Á sama tíma er þetta óneitanlega breyttur veruleiki, og auðvitað ekki sá sem við hefðum sjálf kosið,“ segir hún.

Hér má sjá tvo einkennisklædda lögreglumenn á fundi þingflokksins á …
Hér má sjá tvo einkennisklædda lögreglumenn á fundi þingflokksins á Höfn í Hornafirði í gær. Á öðrum fundum hafa einnig verið óeinkennisklæddir sérsveitarmenn. Ljósmynd/Aðsend

Harkan í mótmælum breytt landslaginu

Á fundi í Reykjanesbæ í síðustu viku hélt flokkurinn opinn fund um útlendingamál sem rúmlega 100 manns sóttu. Blaðamaður mbl.is á staðnum taldi fimm óeinkennisklædda sérsveitarmenn á fundinum.

„Það hefur verið mikill kostur á Íslandi að fólk í opinberum stöðum fer að jafnaði um samfélagið líkt og aðrir án þess að það kalli á sams konar gæslu og víðast hvar annars erlendis,“ segir Hildur en bætir við:

Hins vegar hafa uppákomurnar og harkan í mótmælum síðustu vikur og mánuði breytt landslaginu upp að einhverju marki, sem er miður. Og ég held að allir vonist sannarlega til þess að það verði ekki varanleg breyting.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert