„Flautaðu ef þú vilt lægri skatta“

Sjálfstæðisflokkurinn er lagður af stað í hringferð sína um landið.
Sjálfstæðisflokkurinn er lagður af stað í hringferð sína um landið. Ljósmynd/Facebook

Sjálfstæðisflokkurinn heldur af stað í hringferð sína um landið í dag á sérmerktri rútu. Mun það því ekki fara fram hjá landsmönnum þegar flokkurinn rennir í bæinn. 

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, birti myndir af rútunni í morgun. Aftan á rútunni standa orðin: „Flautaðu ef þú vilt lægri skatta“.

Rútan heldur fyrst á Akranes og er súpufundur þar í hádeginu í dag. Því næst er förinni heitið á Bessastaði í Húnaþingi vestra og svo er fundur með trúnaðarmönnum á Blönduósi. 

Flokkurinn mun svo þræða Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland og enda ferðina á Suðurlandi.

Síðar á árinu verður farið til Vestmannaeyja, á Snæfellsnes, á Vestfirði og á höfuðborgarsvæðið að því er fram kemur á vef Sjálfstæðisflokksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert