Bjarni hvetur til stillingar

Bjarni Benediktsson á fundi sjálfstæðismanna í gær.
Bjarni Benediktsson á fundi sjálfstæðismanna í gær. mbl.is/Óttar

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hvetur alla aðila til stillingar, vegna árásar Írana á Ísrael. 

Ísland for­dæm­ir árás Írans á Ísra­el í gærkvöldi. Versnandi öryggi á svæðinu veldur alvarlegum áhyggjum. Við biðlum til allra aðila að sýna stillingu til þess að koma í veg fyrir frekari stigmögnun,“ segir Bjarni á X.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur þegar tilkynnt að Ísland fordæmi árásina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert