Steingrímur J. efstur í leiðbeinandi forvali VG í NA-kjördæmi

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon.

Haldið var leiðbeinandi forval meðal félaga Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi nú í nóvember. Forvalið fór fram með þeim hætti að félagsmenn rituðu sex nöfn þeirra sem þeir vildu sjá skipa eitthvert af sex efstu sætum listans. Sautján gáfu kost á sér í forvalinu.

Úrslit urðu þessi:
Steingrímur J. Sigfússon
Þuríður Backman
Björn Valur Gíslason
Hlynur Hallsson
Ingibjörg Hjartardóttir
Jóhanna Gísladóttir

Uppstillinganefnd mun nú hefja vinnu við að gera tillögu að framboðslista með hliðsjón af úrslitum forvalsins. Kjördæmisþing verður haldið 10. desember þar sem listinn verður endanlega ákveðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka