Fylgi Frjálslynda flokksins eykst

Fylgi Frjálslynda flokksins mælist nú 11% samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups en var 4% í sambærilegri könnun um síðustu mánaðamót. Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst hins vegar saman um 6 prósentur og mælist nú 37% að því er kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld.

Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 25% eins og fyrir mánuði. Fylgi VG er nú 19% en var 20% fyrir mánuði og fylgi Framsóknarflokksins mælist 8% nú eins og í síðustu könnun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert