Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 17. mars

Alþingishúsið.
Alþingishúsið. Morgunblaðið/ Sverrir

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna komandi alþingiskosninga hefst 17. mars næstkomandi og fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis, fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg og frá 2. apríl í Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis.

Þeim sem ætla að kjósa er bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir mæta til kosningar. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir, að því er segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytingu. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar má finna á vefsetrinu www.kosning.is. Kjósendum ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert