Nýr fundur klukkan 10

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Steingrímur J. Sigfússon svara spurningum blaðamanna …
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Steingrímur J. Sigfússon svara spurningum blaðamanna í gærkvöldi. mbl.is/Árni Sæberg

Nýr formlegur fundur fulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs um myndun minnihlutastjórnar hefst í Alþingishúsinu klukkan 10 í dag. Fyrsti fundurinn var haldinn í gær og stóð í fjórar klukkustundir en vinnu var haldið áfram í málefnahópum í gærkvöldi.

Viðræður flokkanna um minnihlutastjórn eru langt á veg komnar og búist við að þeim ljúki í kvöld eða á morgun. Nokkur áhersluatriði hafa komið upp sem flokkana greinir á um. Helst ber að nefna kjördag þingkosninga en Vinstri grænir vilja kjósa mun fyrr en Samfylkingin eða fyrir páska, í lok mars eða byrjun aprílmánaðar.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru hvorki Samfylkingin né Framsóknarflokkurinn, sem lýst hefur vilja til að verja stjórnina vantrausti, tilbúin að styðja boðað frumvarp VG um frystingu eigna auðmanna. Er það talið geta stangast á við stjórnarskrá og lög. 

Flokkarnir eru samkvæmt upplýsingum blaðsins sammála um flest meginatriði við verkstjórnina til kosninga eins og aðgerðir til að bjarga heimilum og fyrirtækjum í landinu, breytingar á bankastjórn Seðlabankans, endurskoðun á skipulagsbreytingum í heilbrigðiskerfinu og afnám eftirlaunalaganna.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, segir að ekki standi til að kjósa um hvort ganga eigi til aðildarviðræðna við ESB samhliða kosningum. Þá sé flokkur hans raunsær í því að samningum við IMF verði ekki sagt upp.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa flokkarnir rætt um að sérfræðingur utan þingsins gegni stöðu viðskiptaráðherra. Í viðræðum flokkanna hafa nöfn hagfræðinganna Gylfa Magnússonar, Þorvaldar Gylfasonar og Lilju Mósesdóttur komið upp. Engar endanlegar ákvarðanir munu hafa verið teknar um ráðuneytaskipti.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert