Innlagnargjöld afnumin

Nýr heilbrigðisráðherra ætlar að afnema innlagnargjald á sjúkrahúsum. stækka

Nýr heilbrigðisráðherra ætlar að afnema innlagnargjald á sjúkrahúsum. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Ögmundur Jónasson, nýr heilbrigðisráðherra, hefur tekið ákvörðun um að afnema innritunargjöld á sjúkrahús en reglugerð þar um tók gildi um áramótin. Að sögn heilbrigðisráðherra verður ný reglugerð birt á næstu dögum.

Samkvæmt reglugerðinni, sem tók gildi um áramótin, var tekið upp 6000 króna gjald vegna  innlagnar á sjúkrahús, þó ekki vegna innlagnar á fæðingardeild. Gjaldið fyrir elli- og örorkulífeyrisþega var þrjú þúsund krónur en börn yngri en 18 ára greiða ekkert.

„Þetta er í samræmi við þá gagnrýni sem við höfum haldið uppi í vetur, nefnilega að þarna sé um að ræða gjöld sem séu með öllu óviðunandi,“ segir Ögmundur.

Hann kveðst jafnframt vera að skoða nýboðaðar skipulagsbreytingar í heilbrigðiskerfinu. Þá ætlar Ögmundur að hitta bæjarstjórann í Hafnarfirði í vikunni vegna boðaðra breytinga á St. Jósefsspítala og einnig þá sem tengjast starfseminni þar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is