Vill lækka fjárframlög til stjórnmálaflokka

Kristinn H. Gunnarsson.
Kristinn H. Gunnarsson. mbl.is/Ómar

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að fjárframlög til stjórnmálaflokka verði lækkuð um 10% á þessu ári.

Frumvarp Kristins er um fjáraukalög. Samkvæmt því lækka framlög til stjórnmálasamtaka um 37,2 milljónir og verður 334,3 milljónir.

Í greinargerð segir, að við þær aðstæður, sem nú eru uppi í íslensku þjóðfélagi sé nauðsynlegt að stjórnmálaflokkarnir lækki fjárframlög úr ríkissjóði til starfsemi sinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert