Þórlindur óskar eftir 4. sæti

Þórlindur Kjartansson stækka

Þórlindur Kjartansson

Þórlindur Kjartansson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í  Reykjavík. Hann óskar eftir stuðningi í 4. sæti í prófkjörinu. Eftirfarandi er tilkynning frá framboði hans:Þórlindur er 32 ára gamall og hefur lokið BA námi í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hann var kjörinn formaður SUS haustið 2007 á þingi sambandsins á Seyðisfirði. Þar hlaut hann stuðning yfir 90% þinggesta.

Hann leggur áherslu á að til þess að Ísland standist samkeppni á alþjóðavísu þurfi að tryggja að landið sé bæði opið og frjálst.

Skynsamleg nýting auðlinda, góð menntun og frumkvöðlahvetjandi umhverfi eru traustur grunnur undir endurreisn í íslensku athafnalífi. Séu þessi grundvallaratriði tryggð munu Íslendingar koma í veg fyrir að mikill fjöldi fólks hverfi úr landi, því hér verða forsendur góðar fyrir skjótan bata efnahagslífsins.

Þórlindur hefur verið talsmaður breytinga í gjaldeyrismálum.
Mikilvægasta hlutverk Sjálfstæðisflokksins nú, að mati Þórlinds, er að halda uppi vörnum fyrir frjálst athafnalíf og einstaklingsfrelsið í sem víðustum skilningi. Breyttar aðstæður kalla á endurskoðun ýmissa þátta í grunngerð samfélagsins, einkum fjármálaþjónustunnar. Traust á einstaklinginn, sköpunarkraft hans og atorku, er þó enn sem fyrr farsælasta leiðin til þess að skapa verðmæti og auka lífsgæði.

Þórlindur er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann var Inspector Scholae í Menntaskólanum í Reykjavík, var formaður og oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, í Háskóla Íslands og ritstjóri vefritsins Deiglan.com. Hann hefur skrifað hundruð greina um þjóðmál. Í menntaskóla skrifaði hann í félagi við Eggert Þór Aðalsteinsson metsölubækur um íþróttir.

Hann hefur verið sjálfstæður atvinnurekandi, starfað sem blaðamaður, verið ráðgjafi ráðherra og starfaði við markaðsmál og viðskiptaþróun í Landsbankanum. Hann hóf meistaranám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík sl. haust.

Þórlindur er sonur hjónanna sr. Kjartans Arnar Sigurbjörnssonar og Katrínar Þórlindsdóttur. Hann er kvæntur Ingunni H. Hauksdóttur endurskoðanda og saman eiga þau soninn Anton Hauk.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is