Stuðningur við Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu eykst

Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú líklegast kjósa? ... stækka

Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú líklegast kjósa? Samtals tóku 58% afstöðu til spurningarinnar, aðrir kváðust óákveðnir (27%), myndu skila auðu (9%), myndu ekki kjósa (3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4%).

Fylgi Samfylkingarinnar mælist nú 24,1%  í nýrri könnun, sem Markaðs- og miðlarannsóknir (MMR) hafa gert. Í síðustu könnun fyrirtækisins í janúar mældist fylgi flokksins mældist 16,7%. Þá eykst fylgi Sjálfstæðisflokksins um tæp 5 prósentustig frá í janúar, eða úr 24,3% í 29% og mælist hann enn á ný stærsti stjórnmálaflokkurinn.

Fylgi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs dalar hins vegar nokkuð milli kannana og mælist nú 23,4% en var 28,5% í síðustu könnun.

Fylgi Framsóknarflokksins dalar heldur og mælist nú 14,9% en var 17,2% í janúar.

Fjöldi þeirra sem sagðist myndu kjósa aðra stjórnmálaflokka en buðu fram síðast minnkar úr 7,9% í janúar í 6,6% nú.

MMR gerði síðast könnun dagana 20.-21. janúar þegar búsáhaldabyltingin svonefnda stóð sem hæst, tveimur dögum áður en tilkynnt var um slit ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Segir fyrirtækið að sú könnun hafi því glöggt sýnt hve erfið staða Samfylkingarinnar í ríkisstjórnarsamstarfinu var orðin.

Ríkisstjórnin nýtur meiri stuðnings

Stuðningur við nýja ríkisstjórn mælist nú töluvert hærri en fyrri ríkisstjórn naut dagana fyrir stjórnarslit. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 56,1% en mældist 24,2% í janúar.

Á bilinu 94% til 95% þeirra sem segjast myndu kjósa Vinstri græna eða Samfylkinguna segjast styðja ríkisstjórnina. Þá segjast 61% framsóknarmanna og 3% sjálfstæðismanna styðja ríkisstjórnina.

Könnunin var gerð dagana 11.-12. febrúar og var heildarfjöldi svarenda 971 einstaklingur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Laugardaginn 18. desember

Fimmtudaginn 2. desember

Miðvikudaginn 1. desember

Þriðjudaginn 30. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember

Mánudaginn 22. nóvember

Laugardaginn 20. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Föstudaginn 12. nóvember

Miðvikudaginn 10. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Mánudaginn 25. október

Fimmtudaginn 21. október

Þriðjudaginn 19. október

Mánudaginn 18. október

Sunnudaginn 17. október

Laugardaginn 16. október

Föstudaginn 15. október

Fimmtudaginn 14. október

Mánudaginn 11. október

Laugardaginn 9. október

Föstudaginn 8. október

Fimmtudaginn 7. október

Föstudaginn 1. október

Fimmtudaginn 23. september

Miðvikudaginn 22. september

Þriðjudaginn 21. september

Miðvikudaginn 8. september

Miðvikudaginn 1. september

Mánudaginn 30. ágúst

Miðvikudaginn 25. ágúst

Þriðjudaginn 24. ágúst


finnur.is