Jóni frjálst að láta reyna á fylgið

Ingibjörg og Jóhanna ásamt Steingrími J. og Katrínu
Ingibjörg og Jóhanna ásamt Steingrími J. og Katrínu mbl.is/Ómar

Kallað er eftir ákveðinni nýliðun innan allra flokka þessa dagana. Telji Jón Baldvin Hannibalsson sig vera þá nýliðun sem Samfylkingin þurfi á að halda, þá er honum frjálst að bjóða sig fram til formannsembættisins og láta reyna á fylgi sitt. Þetta var viðhorf þeirra samfylkingarmanna sem Morgunblaðið ræddi við í gær. Eins virtust menn sammála um að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir nyti stuðnings samfylkingarfólks í formannsembættinu.

„Það hefur verið mikill almennur stuðningur við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur sem formann innan Samfylkingarinnar,“ segir Árni Páll Árnason, þingmaður flokksins. Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar er sama sinnis. „Bæði Ingibjörg og Jóhanna njóta fulls stuðnings í sínum störfum,“ segir Lúðvík. „Jóhanna sem forsætisráðherra og Ingibjörg sem formaður flokksins.“

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er ekki sáttur við þau ummæli Jóns Baldvins að Ingibjörg eigi að víkja úr formannsstólnum. „Ummæli Jóns gerðu mig dapran,“ segir hann. „Ingibjörg Sólrún er í veikindafríi og kemur heim í næstu viku og ég tel að enginn eigi að tala með þeim hætti sem fyrrverandi formaður Alþýðufloksins gerði. Þetta er ólíkt þeim Jóni sem ég hef unnið með. Það er alveg ljóst af minni hálfu að ef Ingibjörg Sólrún vill gefa kost á sér til að leiða áfram Samfylkinguna þá mun ég styðja hana af heilum hug.“

Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir Jón Baldvin ekki virðast vera málsvari neins sérstaks málstaðar innan Samfylkingarinnar. „Jón Baldvin hefur verið að gefa yfirlýsingar um hitt og þetta undanfarin ár. Hann stendur hins vegar ekki fyrir neitt afl í flokknum, það að ég geti séð.“
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert