Gunnar sækist ekki eftir endurkjöri

Gunnar Svavarsson (t.h.)ásamt Lúðvíki Geirssyni, bæjarstjóra í Hafnarfirði.
Gunnar Svavarsson (t.h.)ásamt Lúðvíki Geirssyni, bæjarstjóra í Hafnarfirði. Ásdís Ásgeirsdóttir

Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, sækist ekki eftir endurkjöri í komandi kosningum. Hann segir að ákvörðunin sé tekin í sátt við alla þá sem hann hafi starfað með í öllum flokkum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Gunnar hefur sent frá sér.

Hún er eftirfarandi:

„Atburðir síðustu mánaða og vikna hafa kallað fram uppgjör í stjórnmálum og víðtæka umræðu um uppstokkun og aukið lýðræði. Við þessar aðstæður er eðlilegt að við sem nú sitjum á þingi,  hvort heldur í lengri eða skemmri tíma, speglum okkur í umræðunni, frekar en okkur sjálfum og reynum eftir fremsta megni að hlusta á skilaboð þjóðarinnar. Kallað hefur verið eftir því að við stígum til hliðar og gerum mögulega nauðsynlega endurnýjun í stjórnmálunum. Þrátt fyrir að hafa aðeins setið 2 ár á Alþingi, hef ég hlustað ítarlega á þessa umræðu og tekið hana á jafn ríkan hátt til mín og vonandi aðrir.

Í ljósi þessa, m.a. til þess að skapa svigrúm fyrir nauðsynlega endurnýjun í efstu sætum framboðslistans hef ég ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri í komandi Alþingiskosningum. Ég tek þessa ákvörðun í sátt við alla þá sem ég hef starfað með í öllum stjórnmálaflokkum, um leið og ég þakka þann mikla stuðning og hvatningu sem ég hef jafnan fundið fyrir.

Það eru forréttindi að hafa verið trúað fyrir starfi alþingismannsins og vil ég þakka stuðningsmönnum í kjördæminu sem valið hafa mig sem fulltrúa sinn á Alþingi innilega fyrir traustið, ekki hvað síst Hafnfirðingum. Ég er einnig þakklátur þing- og samstarfsflokkum á Alþingi fyrir að hafa valið mig til mikilvægra embætta s.s. formanns fjárlaganefndar. Þar hef ég leyft ólíkum sjónarmiðum að njóta sín og reynt að draga fram það besta fram hjá öllum nefndarmönnum, en einkar gott starf hefur verið unnið í fjárlaganefndinni við erfiðar aðstæður.

Það er með þakklæti og virðingu fyrir þeim störfum og embættum sem ég hef gegnt að ég kveð Alþingi á vori komandi. Samstarf við starfsfólk og annað samferðarfólk hefur alla jafnan verið með ágætum og hefur starfsfólk Alþingis unnið þrekvirki á umliðnum mánuðum við erfiðar aðstæður, ekki hvað síst þingverðir og starfsfólk nefndarsviðs.

Síðast en ekki síst vil ég ítreka þakkir til handa flokksmanna Samfylkingarinnar fyrir ánægjulegt samstarf og stuðning í tengslum við þingstörfin.“


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert