Illugi heldur efsta sætinu í Reykjavík

Illugi Gunnarsson, Sigurður Kári Kristjánsson, Pétur Blöndal og Guðlaugur Þór …
Illugi Gunnarsson, Sigurður Kári Kristjánsson, Pétur Blöndal og Guðlaugur Þór Þórðarsson fylgjast spenntir með. mbl.is/hag

Illugi Gunnarsson heldur efsta sætinu í Reykjavík skv. nýjustu tölum úr prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sem voru lesnar upp kl. 19. Illugi hefur fengið 2333 atkvæði í fyrsta sætið. Búið er að telja 3858 atkvæði.

Guðlaugur Þór Þórðarsson er annar með 1399 atkvæði í 1.-2. sætið

Pétur Blöndal er þriðji með 1787 atkvæði í 1.-3. sæti.

Ólöf Nordal er í fjórða sæti með 1354 atkvæði í 1.-4. sæti.

Sigurður Kári Kristjánsson er í fimmta sæti með 1516 atkvæði í 1.-5 sæti.

Birgir Ármannsson er í sjötta sæti með 1397 atkvæði í 1.-6 sæti.

Ásta Möller er í sjöunda sæti með með 1446 atkvæði í 1.-7. sæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert