Birkir Jón sigurvegari

Birkir Jón Jónsson. stækka

Birkir Jón Jónsson.

Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, sigraði í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Kosið var um sæti 1 til 8 á aukakjördæmisþingi á Egilsstöðum í dag.

Birkir Jón hlaut 505 atkvæði í fyrsta sæti. Höskuldur Þórhallsson hlaut 647 atkvæði í 1.-2. sætið.

Hulda Aðalbjarnardóttir menningar- og fræðslufulltrúi Norðurþings varð í þriðja sæti en hún hlaut 509 atkvæði í 1.-4. sæti. Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri skipar fjórða sæti listans, hann hlaut 304 atkvæði í 1.-4. sæti.

Alls greiddu 928 atkvæði í prófkjörinu.

Verið er að kynna niðurstöður prófkjörsins á kjördæmisþinginu og í framhaldinu verður 20 manna framboðslisti kynntur flokksmönnum.

Framsóknarflokkurinn fékk þrjá menn kjörna í Norðausturkjördæmi í þingkosningunum vorið 2007.

Niðurstaða prófkjörs í sæti 1 - 8

1. Birkir Jón Jónsson, alþingismaður - 505 atkvæði í 1. sæti
2. Höskuldur Þór Þórhallsson, alþingismaður - 647 atkvæði í 1.-2. sæti
3. Huld Aðalbjarnardóttir menningar-og fræðslufulltrúi Norðurþings - 509 atkvæði í 1.-3. sæti
4. Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri - 340 atkvæði í 1.-4. sæti
5. Svanhvít Aradóttir, forstöðuþroskaþjálfi - 448 atkvæði í 1.-5. sæti
6. Hallveig Björk Höskuldsdóttir, leiðtogi í málmvinnslu Alcoa - 463 atkvæði í 1.-6. sæti
7. Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi og tamningamaður - 497 atkvæði í 1.-7. sæti
8. Anna Kolbrún Árnadóttir, sérkennari - 397 atkvæði í 1.-8. sæti

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is