Langstærsti fundur VG hingað til

Merki VG
Merki VG

Sjötti landsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs er nú settur. Steingrímur J. Sigfússon, formaður, sagði fundinn þann langstærsta í sögu flokksins, enda færi flokkurinn ört stækkandi.

Von er á 500-700 gestum á landsfundinn, og að bætist í hópinn þegar líður á daginn. Opnunarhátíð fundarins verður kl.17 og mun þá formaðurinn halda setningarræðu sína.

Lagt var til að Sjöfn Ingólfsdóttir yrði fyrsti forseti fundarins, og var það samþykkt með lófataki. Tillögur um aðra starfsmenn fundarins voru einnig samþykktar með lófataki.

Í kvöld munu fara fram almennar stjórnmálaumræður, en kosið verður í stjórn flokksins í fyrramálið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert