Sest á þing í sauðburðinum

Ásmundur Einar Daðason að merkja fé í fjárhúsunum á Lambeyrum. stækka

Ásmundur Einar Daðason að merkja fé í fjárhúsunum á Lambeyrum. mynd/Helgi Torfason

Morgunblaðið Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is
„Þetta verður leyst með einhverjum hætti,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, sauðfjárbóndi á Lambeyrum í Dalasýslu, þegar hann var spurður hver myndi leysa hann af í sauðburðinum í vor, en Ásmundur var kjörinn alþingismaður um helgina. Ekki eru nema 2-3 vikur í að sauðburður hefjist af fullum krafti á Lambeyrum, en það er annasamasti tími ársins hjá sauðfjárbændum.

Þegar Morgunblaðið ræddi við Ásmund í gær var hann ásamt föður sínum, Daða Einarssyni, bónda á Lambeyrum, að fara yfir hvernig best væri að skipuleggja vinnuna við sauðburðinn. Daði, Ásmundur og Sunna Birna Helgadóttir, kona hans, eru með um 1.300 fjár.

Ásmundur sagði að síðustu dagar væru búnir að vera annasamir hjá sér eins og öðrum frambjóðendum. „Norðvesturkjördæmi er stórt og mikið kjördæmi og við vorum að tala um það undir lok kosningabaráttunnar að það yrði gott að komast í sauðburðinn,“ sagði Ásmundur brosandi, en á stórum sauðfjárbúum þarf að hafa sólarhringsvakt í fjárhúsunum meðan á sauðburðinum stendur. Ásmundur sagði óljóst hvernig næstu vikur yrðu hjá sér, en hann kvaðst vonast eftir að hann gæti tekið einhvern þátt í sauðburðinum.

Sofnaði utan þings en vaknaði sem þingmaður

Kosninganóttin var spennandi hjá Ásmundi en hann var ýmist úti eða inni á þingi. Hann fór að sofa um hálffimm um nóttina og þá var hann ekki inni á þingi. Þegar hann vaknaði aftur einum og hálfum klukkutíma síðar var hann hins vegar kominn inn á þing.

Ásmundur er yngstur þeirra þingmanna sem kosnir voru á þing, en hann er 26 ára gamall. Hann er sömuleiðis eini bóndinn sem náði kjöri á þing.

Það er orðið langt síðan Dalamenn áttu þingmann. Síðasti Dalamaðurinn sem sat á þingi sem aðalmaður var Friðjón Þórðarson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem hætti á þingi 1991. Ásgeir Bjarnason, bóndi í Ásgarði í Dölum, sat einnig á þingi áratugum saman og var um tíma forseti Alþingis.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Laugardaginn 18. desember

Fimmtudaginn 2. desember

Miðvikudaginn 1. desember

Þriðjudaginn 30. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember

Mánudaginn 22. nóvember

Laugardaginn 20. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Föstudaginn 12. nóvember

Miðvikudaginn 10. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Mánudaginn 25. október

Fimmtudaginn 21. október

Þriðjudaginn 19. október

Mánudaginn 18. október

Sunnudaginn 17. október

Laugardaginn 16. október

Föstudaginn 15. október

Fimmtudaginn 14. október

Mánudaginn 11. október

Laugardaginn 9. október

Föstudaginn 8. október

Fimmtudaginn 7. október

Föstudaginn 1. október

Fimmtudaginn 23. september

Miðvikudaginn 22. september

Þriðjudaginn 21. september

Miðvikudaginn 8. september

Miðvikudaginn 1. september

Mánudaginn 30. ágúst

Miðvikudaginn 25. ágúst

Þriðjudaginn 24. ágúst


finnur.is