Fyrningarleið víst farin

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að þegar stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar verði kynntur muni menn komast að raun um að farin verði fyrningarleið kvóta í sjávarútvegi eins og báðir stjórnarflokkarnir hafi haft á stefnuskrá sinni.

„Ég held að það sé enginn að bakka í þessu máli,” sagði Jóhanna skömmu áður en þingflokksfundur Samfylkingarinnar hófst klukkan fjögur. Hún sagði að stefna beggja flokka væri að kalla aflaheimildir inn í áföngum og sú leið yrði farin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert