Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 10.5.2009
| 20:00
| Uppfært
20:17
Ráðherraskipti í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
Jón Bjarnason, oddviti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi tók áðan við lyklavöldum í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG sem gegnt hefur embættinu frá í febrúar, afhenti Jóni lyklavöldin.
Jón Bjarnason er 66 ára, fæddur í Asparvík í Strandasýslu 26. desember 1943. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1965, búfræðiprófi frá Hvanneyri 1967 og var útskrifaður búfræðikandídat frá Landbúnaðarháskólanum í Ási í Noregi 1970. Jón tók sæti á Alþingi árið 2003 og er núverandi formaður þingflokks VG.
|
|
100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar |
|
|
Samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnar VG og Samfylkingar |
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






