Jón Gnarr heimsótti séra Bjarna

Frambjóðendurnir Bjarni Karlsson og Jón Gnarr.
Frambjóðendurnir Bjarni Karlsson og Jón Gnarr. mbl.is Golli

Jón Gnarr, frambjóðandi Besta flokksins, kom við á framboðsfundi sem séra Bjarna Karlssyni efndi til í Kolaportinu í dag. Ekki var annað að sjá en að vel væri á með þeim Jóni og Bjarna, en þeir eru reyndar ekki samherjar í stjórnmálum því Bjarni stefnir á framboð fyrir Samfylkinguna.

Séra Bjarni býður sig fram í 3.-4. sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar sem fram fer um næstu helgi. Margir voru í Kolaportinu í dag og greinilegt að þar fara fram heitar pólitískar umræður. Séra Bjarni ávarpaði fundinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert