Dofri kominn í fimmta sætið

Dofri Hermannsson
Dofri Hermannsson

Dofri Hermannsson er kominn í fimmta sæti lista Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar 2.212 atkvæði hafa verið talin. Bjarni Karlsson er nú í sjötta sæti listans en engar aðrar breytingar hafa orðið á skipun listans frá fyrstu tölum.

Dagur B. Eggertsson með 1.652 atkvæði í fyrsta sæti.

Í öðru sæti
Oddný Sturludóttir með 722 atkvæði í fyrsta til annað sæti.

Í þriðja sæti
Björk Vilhelmsdóttir með 791 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti.

Í fjórða sæti
Hjálmar Sveinsson með 779 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti.

Í fimmta sæti
Dofri Hermannsson með 918 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti.

Í sjötta sæti
Bjarni Karlsson með 1.036 atkvæði í fyrsta til sjötta sæti.

Í sjöunda sæti
Sigrún Elsa Smáradóttir með 1.1.06 atkvæði í fyrsta til sjöunda sæti.

Í áttunda sæti
Margrét K. Sverrisdóttir með 1.127 atkvæði í fyrsta til áttunda sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert