Elfur hlaut fjórða sætið

Elfur Logadóttir hafði betur í kosningu um fjórða sætið í forvali Samfylkingarinnar í Kópavogi. Jafnt var á milli frambjóðenda en Elfur hlaut 52,9% atkvæða og Margrét Júlía Rafnsdóttir 45,6%. Aðrir seðlar voru auðir eða ógildir.

Nú fer fram kosning í 5. sæti listans og eru 7 í kjöri, þau Guðmundur Örn Jónsson, Guðrún Jóna Jónsdóttir, Hjördís Erlingsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Óðinn Hilmisson, Sigurður M. Grétarsson og Tjörvi Dýrfjörð.

Fyrr í dag varð ljóst að Guðríður Arnardóttir hlaut fyrst sætið, Hafsteinn Karlsson annað sætið og Pétur Ólafsson það þriðja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert