Forval Vinstri grænna í Reykjavík og á Akureyri fer fram í dag fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Í Reykjavík gefa 18 félagar kost á sér í 1.-6. sæti og á Akureyri eru frambjóðendur 9.
VG á tvo fulltrúa í borgarstjórn í Reykjavík, þau Þorleif Gunnlaugsson og Sóleyju Tómasdóttur og sækjast þau bæði eftir fyrsta sætinu. Kjörfundur fer fram í húsnæði Kvennaskólans við Þingholtsstræti milli kl. 10 og 18.
Á Akureyri á VG einnig tvo fulltrúa í bæjarstjórn, þau Baldvin H. Sigurðsson og Kristínu Sigfúsdóttur. Tvö gefa kost á sér í fyrsta sæti listans, Baldvin og Andrea Hjálmsdóttir. Þar fer kjörfundur fram í húsnæði flokksins á Akureyri að Brekkugötu 7a milli klukkan 10 og 18.