Okkur eru allir vegir færir

Haraldur Sverrisson leiðir lista sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ. stækka

Haraldur Sverrisson leiðir lista sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ.

„Ég er þakklátur fyrir þessa kosningu. Niðurstaðan sýnir að ég hef góðan stuðning í bæjarfélaginu,“ segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, sem kosinn var í prófkjöri í gær í efsta sætið á lista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnakosningar.

Haraldur sóttist einn eftir efsta sætinu en hann hefur verið oddviti listans frá því Ragnheiður Ríkharðsdóttir fór á þing.

Hlaut Haraldur 83,5% atkvæða í fyrsta sætið.

Meiri barátta var um næstu sæti. Herdís Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi varð í öðru sæti, Bryndís Haraldsdóttir varabæjarfulltrúi í því þriðja og Hafsteinn Pálsson bæjarfulltrúi varð í fjórða sæti.

„Þetta er glæsilegur listi sem við stillum upp. Það bauð sig fram margt gott fólk og það var úr vöndu að ráða hjá þeim sem tóku þátt í prófkjörinu,“ segir Haraldur.

Hann er ánægður með þátttökuna. 826 greiddu atkvæði sem er 61% af þeim sem voru á kjörskrá. Margir gengu í flokkinn á prófkjörsdag.

„Þetta er miklu meiri þátttaka en við höfum verið að sjá í prófkjörum að undanförnu. Ég tel að hún sýni hvað þetta er breiður hópur fólks og  höfðar vel til fólks í bænum,“ segir Haraldur.

„Nú förum við að undirbúa stefnu okkar fyrir kosningar og blása í lúðra. Með þessu fólki er okkur sjálfstæðismönnum allir vegir færir,“ segir bæjarstjórinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Laugardaginn 18. desember

Fimmtudaginn 2. desember

Miðvikudaginn 1. desember

Þriðjudaginn 30. nóvember

Fimmtudaginn 25. nóvember

Mánudaginn 22. nóvember

Laugardaginn 20. nóvember

Miðvikudaginn 17. nóvember

Föstudaginn 12. nóvember

Miðvikudaginn 10. nóvember

Miðvikudaginn 3. nóvember

Þriðjudaginn 2. nóvember

Mánudaginn 25. október

Fimmtudaginn 21. október

Þriðjudaginn 19. október

Mánudaginn 18. október

Sunnudaginn 17. október

Laugardaginn 16. október

Föstudaginn 15. október

Fimmtudaginn 14. október

Mánudaginn 11. október

Laugardaginn 9. október

Föstudaginn 8. október

Fimmtudaginn 7. október

Föstudaginn 1. október

Fimmtudaginn 23. september

Miðvikudaginn 22. september

Þriðjudaginn 21. september

Miðvikudaginn 8. september

Miðvikudaginn 1. september

Mánudaginn 30. ágúst

Miðvikudaginn 25. ágúst

Þriðjudaginn 24. ágúst


finnur.is