Vilja stefna að 3,5% hagvexti

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík stækka

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík mbl.is/Ómar Óskarsson

 kosningastefnuskrá vegna komandi borgarstjórnarkosninga á fjölmennu Reykjavíkurþingi sem haldið var í Breiðholti. Samfylkingin í Reykjavík segist líta á atvinnumál sem algert forgangsverkefni í borginni á næsta kjörtímabili. Til að standa undir velferð og lífskjörum þurfi að tryggja 3,5% meðalhagvöxt í Reykjavík næsta kjörtímabil og vegna stöðu efnhagsmála þýði þetta jafnframt að stefna þarf að um 5% hagvexti 2014. 

Til þess þurfi margþættar aðgerðir sem ekki séu allar á færi Reykjavíkur heldur þurfi að ná víðtækari samstöðu og samstarfi. Þessi tölulegu markmið eigi að vera markmið vaxtarsamnings Reykjavíkur, ríkisstjórnar, verkalýðshreyfingar, fyrirtækja, stuðningsstofnana atvinnulífsins og  annarra samtaka í atvinnulífi.

Þetta kemur m.a. fram í  kosningastefnuskrá vegna komandi borgarstjórnarkosninga, sem samþykkt var á  Reykjavíkurþingi flokksins í Breiðholti í gær.

Í stefnuskránni er m.a. lagt til að borgin taki lán til að halda uppi framkvæmdastigi í kreppunni í stað þess að skera framkvæmdir niður um 70% eins og nú sé ráðgert.

„Borgarsjóður ræður við þessar lántökur, hægt er að fá hagstæð tilboð og forða þannig algeru hruni í framkvæmda- og byggingariðnaði," segir í stefnuskránni.

PDF-skrá Kosningastefnuskrá Samfylkingarinnar í Reykjavík
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is