Meirihlutinn fallinn á Akureyri

Hermann Jón Tómasson oddviti Samfylkingarinnar og Sigrún Björk Jakobsdóttir oddviti …
Hermann Jón Tómasson oddviti Samfylkingarinnar og Sigrún Björk Jakobsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn samkvæmt könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Sjálfstæðisflokkurinn missir tvo af fjórum bæjarfulltrúum. Listi fólksins bætir aftur á móti miklu við sig - fær þrjá bæjarfulltrúa og er orðinn stærsti stjórnmálaflokkurinn á Akureyri.

Sjálfstæðisflokkur og Samfylking mynduðu meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar eftir kosningarnar 2006. Flokkarnir eru með sjö bæjarfulltrúa af ellefu. Samfylkingin myndi tapa manni og fengi tvo bæjarfulltrúa í stað þriggja í síðustu kosningum.

Bæjarlistinn fær einn menn kjörna líkt og Framsóknarflokkurinn en Vinstri grænir halda tveimur bæjarfulltrúum, gangi spár eftir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert